Sjúkrabílar
Að ná í sjúkrabíl
Kílómetrastaða

Sjúkraflutningar Rauða krossins

Á hverjum degi flytja sjúkrabílar að jafnaði milli fjörutíu og fimmtíu sjúklinga

Styrkja starfið sjukrabilar.jpg

Sjúkrabílafloti Rauða krossins

Allir sjúkrabílar á Íslandi, alls 77 á 40 stöðum á landinu, tilheyra Rauða krossinum sem kaupir þá, útbýr tækjum og rekur. Margar deildir félagsins voru stofnaðar af frumkvöðlum sem vildu tryggja þjónustu sjúkrabíls í sínu sveitarfélagi. Nú eru bílarnir reknir með það í huga að um allt land séu ávallt til reiðu vel útbúnir bílar til sjúkraflutninga.

Á hverjum degi allt árið um kring flytja sjúkrabílar Rauða krossins að jafnaði milli 40 og 50 sjúklinga. Á venjulegu ári fara bílarnir í 20-24 þúsund flutninga en heildarútköll eru um 32 þúsund.

Tæknivæddir sjúkraflutningar eru árangur tæplega 80 ára starfs Rauða krossins. Þegar félagið var stofnað 1924 var einn sjúkrabíll til á landinu, staðsettur í Reykjavík, og þeir sem ekki gátu farið með honum fóru á sjúkrahús annað hvort í burðargrind, með hesti eða þá alls ekki. Tveimur árum síðar var fyrsti sjúkrabíll Rauða krossins keyptur til landsins, ítalskur Fiat með kraftmikla vél og góða aksturshæfileika í snjó.

Samkvæmt samningi velferðarráðuneytisins og Rauða krossins annast Rauði krossinn útvegun, innkaup og rekstur bifreiða og tækjabúnaðar til sjúkraflutninga um allt land fyrir ríkið.

Síðan samningur við velferðarráðuneytið um rekstur bílanna var undirritaður í árslok 1997 hefur meiri hluti bíla verið endurnýjaður, með það í huga að sameina öryggi og hagkvæmni í rekstri.

Fyrirspurnir sendist Marinó Má Marinóssyni.