Útbreiðsla skyndihjálpar hefur verið eitt af meginverkefnum Rauða krossins á Íslandi í um 80 ár. Allt frá stofnun hreyfingarinnar í Genf árið 1863 hefur verið lögð áhersla á skyndihjálp hjá landsfélögum Rauða krossins um allan heim. Rauði krossinn á gott samstarf við landsfélög hreyfingarinnar víða um heim á þessu sviði.
Í nóvember 2001 undirrituðu Rauða krossinn og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, nú velferðarráðuneytið, samkomulag um hlutverk og ábyrgð félagsins í skyndihjálparmálum. Markmiðið með samkomulaginu er að efla og breiða út skyndihjálparþekkingu hér á landi.
Rauði krossinn býður upp á vönduð og hagnýt námskeið í skyndihjálp, sem sniðin eru að þörfum hópa, s.s. almennings, fagaðila og fyrirtækjastarfsmanna, bæði hvað varðar lengd og efnistök.
Á námskeiðunum er lögð áhersla á að kenna rétt viðbrögð í neyð og einfaldar aðferðir skyndihjálpar. Allt fræðsluefnið er gefið út af Rauða krossinum.
Fréttir og greinar
Fréttayfirlit-
Buðu allri fjölskyldunni á skyndihjálparnámskeið
18.02.2013 -
Hélt höfði ökumanns upp úr ánni
13.02.2013 -
Ellefu ára stúlka í Reykjanesbæ hlaut viðurkenningu á 112 daginn
12.02.2013 -
Margt var um að vera á Siglufirði í gær, í tilefni 112 dagsins.
12.02.2013 -
Björguðu lífi í sláturhúsi
11.02.2013