Endurlífgunarráð er fagráð samsett af sérfræðingum á sviði endurlífgunar. Megin markmið þess er að auka upplýsingaflæði um málefni endurlífgunar, stuðla að fræðslu og bæta staðla í endurlífgun með það að leiðarljósi að bjarga mannslífum. Ráðið er skipað af landlækni og í því sitja nú 9 aðilar. Formaður ráðsins er Felix Valsson svæfinga- og gjörgæslulæknir á Landspítalanum. Rauði krossinn á einn fulltrúa í ráðinu. Ráðið var stofnað síðla árs 2001 og var fyrsti fundur þess haldinn í nóvember 2001.
Hlutverk Endurlífgunarráðs
· Fylgjast með og kynna nýjungar á sviði endurlífgunar.
· Vinna að gerð leiðbeininga og ráðlegginga í endurlífgun og móta stefnu í endurlífgunarfræðslu fyrir heilbrigðisstéttir.
· Koma á framfæri og stuðla að rannsóknum á sviðinu.
· Koma á framfæri upplýsingum um endurlífgun.
· Auka meðvitund þjóðfélagsins um mikilvægi þekkingar í endurlífgun.
· Samræma vinnu þeirra aðila sem á einhvern hátt tengjast rannsóknum og fræðslu á sviði endurlífgunar.
· Hvetja til notkunar á viðurkenndum alþjóðlegum leiðbeiningum.
· Vera leiðandi í alþjóðlegum samskiptum um málefni sem því tengjast.
Í Endurlífgunarráði sitja
Felix Valsson formaður
Hildigunnur Svavarsdóttir varaformaður
Ásgeir Valur Snorrason
Jón Örvar Kristjánsson
Hjörtur Oddsson
Gunnhildur Sveinsdóttir ritari
Sesselja Friðþjófsdóttir
Lárus Petersen
Herbert Eiríksson