Áverkar
Aflimun
Áverkar - brjóstkassi
Áverkar - háls og hryggur
Áverkar - höfuð
Áverkar - augu
Áverkar á kvið
Beinbrot
Beinbrot - rifbeinsbrot
Bit og stungur
Blóð undir nögl
Blóðnasir
Blæðing - útvortis
Brunasár
Heilaáverkar
Hundaæði
HVÍL - aðferðin
Höfuðkúpubrot
Innvortis blæðing
Liðhlaup
Lost
Mar
Mjaðmagrindaráverkar
Sár
Sár - sýkingar
Sáraumbúðir og bindi
Spelkun
Tannáverkar
Tognun
Þröngur hringur

Innvortis blæðing

Innvortis blæðing getur verið lífshættuleg. Einkennin geta leynt sér því húðin er heil og blæðingin því ekki sýnileg. Orsakir innvortis blæðinga geta verið áverkar eftir slys sem ekki rjúfa húðina eða sjúkdómar svo sem magasár. 

Allir sem lenda í hörðum árekstri eða bílveltu, þar sem teljandi skemmdir verða á ökutæki  verða fyrir bíl eða falla niður úr nokkurra metra hæð, eiga að fara í læknisskoðun. Í upphafi getur verið að sá slasaði sýni engin merki alvarlegs áverka en að nokkrum tíma liðnum getur blæðing náð því marki að einkennin komi fram. Ef viðkomandi er staddur á sjúkrahúsi getur verið mögulegt að meðhöndla hann, en sé hann í mikilli fjarlægð er voðinn vís. 

Hvað sérðu?

  • Mar eða aðra áverka á húð.
  • Sáran, auman, stífan og marinn kvið.
  • Brotin rif eða marinn brjóstkassa.
  • Blóðug uppköst.
  • Blóðugan uppgang úr lungum.
  • Mjög dökkar eða blóðugar hægðir.
  • Meðvitundarleysi ef lostið er alvarlegt.


Hvað geriðu?

  • Leggðu einstaklinginn niður.
  • Fylgstu með meðvitund og öndun.
  • Hringdu tafalaust í Neyðarlínuna 112.