Áverkar
Aflimun
Áverkar - brjóstkassi
Áverkar - háls og hryggur
Áverkar - höfuð
Áverkar - augu
Áverkar á kvið
Beinbrot
Beinbrot - rifbeinsbrot
Bit og stungur
Blóð undir nögl
Blóðnasir
Blæðing - útvortis
Brunasár
Heilaáverkar
Hundaæði
HVÍL - aðferðin
Höfuðkúpubrot
Innvortis blæðing
Liðhlaup
Lost
Mar
Mjaðmagrindaráverkar
Sár
Sár - sýkingar
Sáraumbúðir og bindi
Spelkun
Tannáverkar
Tognun
Þröngur hringur

Áverkar höfuð

Höfuðkúpubrot

Erfitt er að greina höfuðkúpubrot nema með röntgenmynd.

Hvað sérðu?

  • Blæðing úr eyrum/nefi.
  • Mar aftan við eyrun nokkrum tímum eftir slysið.
  • Misstór sjáöldu.
  • Tær vatnskenndur mænuvökvi lekur úr eyra eða nefi.
  • Glóðarauga báðum megin nokkrum tímum eftir slysið.


Hvað gerirðu?

  • Hringdu í Neyðarlínu (1-1-2).
  • Fylgstu vel með meðvitund, öndun og blóðrás.
  • Stöðvaðu blæðingu með því að þrýsta á sárabarmana umhverfis sárið með hreinni grisju.
  • Skorðaðu höfuð og háls.

Heilaáverkar

Þegar mikið högg kemur á höfuðið, kastast heilinn til inni í höfuðkúpunni. Við heilahristing koma fram væg einkenni heilaáverka en alvarlegri einkenni geta bent til heilablæðingar.

Hvað sérðu?

  • Breyting á meðvitund.
  • Höfuðverkur.
  • Ógleði og uppköst.
  • Máttleysi, jafnvægisleysi eða lömun.
  • Sjóntruflanir.
  • Misstór sjáöldur.
  • Krampi.


Hvað gerirðu?

  • Fylgstu með meðvitund, öndun og blóðrás.
  • Stöðvaðu ytri blæðingu.
  • Skorðaðu höfuð og háls, hækkaðu aðeins undir höfði ef ekki er grunur um hálsáverka.
  • Verði einkenna höfuðáverka vart innan tveggja sólarhringa eftir höggið skaltu leita læknishjálpar.


Börn og höfuðáverkar
Höfuðáverkar eru algengir hjá börnum. Líkur á höfuðáverkum eru meiri hjá börnum en fullorðnum jafnvel við minniháttar slys. Höfuð barna eru hlutfallslega stór og þung miðað við aðra líkamshluta. Þegar barn dettur lendir höfuð þess oftast fyrst og tekur höggið. Ekki bætir úr skák að lítil börn bera sjaldnast fyrir sig hendur þegar þau detta.

Ef höfuðið verður fyrir þungu höggi eða miklum hristingi getur blætt undir höfuðkúpuna. Það skapar þrýsting og þá er hætta á því að heilinn skaðist. Þó að flestir höfuðáverkar séu minniháttar þarf að huga að hættumerkjum.