Áverkar
Aflimun
Áverkar - brjóstkassi
Áverkar - háls og hryggur
Áverkar - höfuð
Áverkar - augu
Áverkar á kvið
Beinbrot
Beinbrot - rifbeinsbrot
Bit og stungur
Blóð undir nögl
Blóðnasir
Blæðing - útvortis
Brunasár
Heilaáverkar
Hundaæði
HVÍL - aðferðin
Höfuðkúpubrot
Innvortis blæðing
Liðhlaup
Lost
Mar
Mjaðmagrindaráverkar
Sár
Sár - sýkingar
Sáraumbúðir og bindi
Spelkun
Tannáverkar
Tognun
Þröngur hringur

Mar

Mar getur myndast þegar líkaminn verður fyrir höggi. Húðin rofnar ekki en vefir og æðar undir yfirborði hennar kremjast og því fer að blæða á afmörkuðu svæði undir húðinni.

Hvað gerirðu?

  • Heftu blæðinguna með því að kæla húðina t.d. með ísmolum, þó ekki lengur en í tuttugu mínútur í senn.
  • Kannaðu hvort um brot geti verið að ræða.
  • Vefðu teygjubindi á áverkann til að fá góðan þrýsting á marið.
  • Lyftu skaddaða útliminum upp fyrir hjarta hins slasaða til að draga úr sársauka og bólgu.