Skyndihjálparpróf
Skyndihjálparpróf 2013
Skyndihjálparpróf 2010
Skyndihjálparpróf 2009
Skyndihjálparpróf 2008

KANNT ÞÚ SKYNDIHJÁLP?

Hér er að finna fimmtán spuringar sem hjálpa fólki að átta sig á skyndihjálparkunnáttu sinni.

 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Rétt!

Því miður ekki rétt

Rétt svar er:  .

1. Vinur þinn fær skyndilegan höfuðverk, á erfitt með mál og er greinilega máttlaus og dofinn öðrum megin í líkamanum. Hvað gæti verið að hjá honum?
a
heilablóðfall
b
hjartaáfall
c
flog
2. Frænku þinni, sem er með þekkt ofnæmi fyrir hnetum, fer að líða illa eftir að hafa borðað súkkulaðiköku. Þig grunar að um bráðaofnæmi sé að ræða. Hver gætu einkennin verið?
a
skjálfti, svimi, óstjórnlegur hósti og hnerri
b
öndunarerfiðleikar, útbrot, ógleði og kviðverkir
c
sljóleiki, blæðingar úr slímhúð í munni og uppköst
3. Lífslíkur einstaklings eftir hjartastopp geta einkum ráðist af því:
a
hversu gamall einstaklingurinn er og hvert líkamlegt form hans er
b
hversu oft er hægt að gefa honum hjartarafstuð á staðnum
c
hvort endurlífgun er beitt á fyrstu mínútum eftir hjartastoppið
4. Vinur þinn skar sig illa á hendi þegar hann var að vaska upp. Það blæðir mikið úr sárinu. Hvað er best að gera?
a
binda þétt með bandi eða sárabindi rétt fyrir ofan sárið og hringja í 112
b
leyfa blóðinu að vætla úr sárinu, alls ekki snerta það, og hringja í 112
c
þrýsta beint á sárið t.d. með hreinum klút eða grisju
5. Þú ert í fjölskylduboði og einn af frændum þínum fer að kvarta um verk fyrir brjósti. Hvaða ráðum ættir þú að fylgja?
a
Pétur frændi: Svona svona honum batnar. Sjáum til í smá stund, honum er bara illt eftir matinn enda var hann allt of kryddaður
b
Anna frænka: Láttu hann setjast niður og hvíla sig og hringdu í 112
c
Siggi frændi: Hjálpaðu honum inn í rúm og leyfðu honum að hvíla sig svolítið
6. Það getur verið ansi erfitt að segja til um það hvort einhver er beinbrotinn, en hver eru helstu einkennin sem þú ættir að leita eftir?
a
verkur, mar, bólga, blæðing
b
heitur útlimur, bólga, höfuðverkur
c
verkur og þrýstingur í útlim, roði á húð
7. Þú ert á leikvelli og barn í þinni umsjón dettur niður úr klifurgrind og lendir illa á fæti. Þig grunar að barnið hafi fótbrotnað. Hvað er rétt að gera?
a
biðja barnið um að stíga varlega í fótinn og sjá hvort það getur gengið
b
biðja barnið að hreyfa fótinn eins lítið og hægt er og skoða fótinn
c
bíða aðeins og sjá til hvort verkurinn hverfur ekki
8. Vinur þinn sem er með sykursýki kvartar um vanlíðan. Hann er svangur, með höfuðverk og skelfur svolítið. Hvað er best að gera?
a
gefa honum eitthvað að drekka eða borða, helst eitthvað sykurlaust
b
gefa honum strax eitthvað sykrað að drekka eða borða
c
hjálpa honum að sprauta sig með insúlíni og hringdu í 112
9. Barnið þitt fær höfuðhögg. Fyrst á eftir þarftu einkum að hafa eftirfarandi í huga:
a
barnið þarf helst að sofna sem fyrst til að jafna sig eftir höfuðáverkann
b
barnið má sofna en nauðsynlegt er að fylgjast vel með ástandi þess
c
passa vel upp á að barnið sofni ekki fyrstu 4 tímana eftir höfuðhöggið
10. Hvernig getur þú hjálpað þeim sem fær flog/krampa?
a
setja eitthvað í munninn á honum
b
reyna að halda honum föstum
c
reyna að verja hann fyrir áverkum
11. Þú ert úti á lífinu með skólafélögum. Ein kona í hópnum, sem þú veist að hefur verið í óreglu og tekur reglulega inn lyf, fer að finna fyrir vanlíðan og hegðar sér einkennilega. Hvaða upplýsingum ættir þú að leita eftir?
a
hvort hún hefur tekið eitthvað ólöglegt inn og ef svo, hvar hún fékk efnin?
b
hvað hún hefur verið að taka inn, hvenær og hversu mikið?
c
hvenær hún tók lyfin, af hverju og í hvern á að hringja?
12. Ef þú lendir í því að þurfa að meta ástand slasaðra og hvort þörf er á frekari aðstoð:
a
er nóg að líta á fólk og spyrja hvort það finnur til
b
þarf að skoða fólk, meta meðvitund og öndun og hvort úr því blæðir
c
er best að gera sem minnst og bíða eftir því að fagfólk komi á staðinn
13. Ef þú kemur að slysi þar sem fleiri en tveir eru slasaðir, hverjum áttu að sinna fyrst?
a
þeim sem er hljóðlátur
b
þeim sem hrópar hæst á hjálp
c
þeim sem grætur sárast
14. Við endurlífgun á að blása tvisvar sinnum:
a
kröftuglega í um eina sekúndu – þangað til brjóstkassi lyftist
b
hægt í um eina sekúndu – þangað til brjóstkassi lyftist
c
eins hratt og kröftuglega og mögulegt er
15. Þú kemur að manni sem þarf að endurlífga. Hversu hratt á að hjartahnoða fullorðinn mann við endurlífgun?
a
100 sinnum á mínútu, sama hvort hlé er tekið til að blása í viðkomandi eða ekki
b
á taktinum 80 til 100 sinnum á mínútu, varast að gera það of kröftuglega
c
á taktinum 100 til 120 sinnum á mínútu

Einkun   af 10

Þekking þín í skyndihjálp er nokkuð góð.

Þekking þín í skyndihjálp þín er í meðallagi.

Þekking þín í skyndihjálp er léleg.

Vissir þú að oftast eru það vinir eða ættingjar sem fyrstir koma á vettvang þegar einhver slasast eða veikist alvarlega? Stutt skyndihjálparnámskeið hjá Rauða krossinum getur gert þér kleift að bjarga mannslífi þegar mínútur skipta máli.

Smelltu hér til að skrá þig á námskeið núna!