Skyndihjálparráð er fagráð og samstarfsvettvangur samtaka og stofnanna þar sem forvarnir og fræðsla í skyndihjálp er stór hluti af starfseminni. Megin hlutverk ráðsins er að gefa ráð og umsagnir um málefni er varða almenna skyndihjálp og sálrænan stuðning. Einnig er því ætlað að stuðla að bættu heilbrigði landsmanna, eflingu forvarna, verndun og björgun mannslífa og draga úr áhrifum áfalla með því að vinna að útbreiðslu skyndihjálpar.
Hlutverk Skyndihjálparráðs
· Vera ráðgefandi um málefni skyndihjálpar.
· Vinna að auknum gæðum skyndihjálparfræðslu.
· Samræma skyndihjálparkennslu.
· Leggja drög að menntun og endurmenntun leiðbeinenda samkvæmt viðurkenndum stöðlum.
· Taka til umsagnar útgefið fræðsluefni í skyndihjálp.
· Hafa frumkvæði að umræðum um mikilvægi skyndihjálpar í þjóðfélaginu.
· Vinna skyndihjálp brautargengi í þjóðfélaginu.
· Fylgjast með þróun og framvindu innan fagsins á innlendum og erlendum vettvangi.
· Stuðla að faglegri þróun innan skyndihjálpar með skilvirku samstarfi við þá aðila er láta sig málefnið varða.
Rauði krossinn heldur utan um starfsemi ráðsins.
Rauða krossinum (2)
Anna María Þórðardóttir
Gunnhildur Sveinsdóttir
Félagi leiðbeinenda í skyndihjálp FLÍS (1)
Oddur Eiríksson
Slysavarnarfélaginu Landsbjörg (1)
Einar Örn Arnarsson
Menntamálaráðuneytinu (1)
Erna Árnadóttir
Velferðarráðuneytinu (1)
Guðbjörg Pálsdóttir
Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (1)
Gunnar M. Baldursson
Landlæknisembættinu (1)
Þorsteinn Jónsson formaður
Starfsreglur Skyndihjálparráðs