Hvammstangadeild Rauða krossins var stofnuð 10. des 1974 eftir að beiðni barst frá landsfélaginu þess efnis. Fyrsti formaður var Magnús Einarsson. Starfssvæði deildarinnar er Húnaþing vestra. Deildin hefur aðstöðu í húsnæði Björgunarsveitarinnar Húna á Hvammstanga.
Deildin sinnir helstu verkefnum eins og neyðarvörnum og standa fyrir námskeiðum í skyndihjálp.