Hvar störfum við
Ísland
Gambía
Haítí
Hvíta-Rússland
Kákasuslöndin
Malaví
Palestína
Sierra Leone
Sómalía

Hvíta-Rússland

Sjálfboðaliðar Rauða krossins í Hvíta-Rússlandi fá stuðning við að upplýsa ungt fólk um hætturnar sem fylgja mansali.

Styrkja starfið Hvitarussland_litil.jpg

Mansal er til í mörgum myndum. Konur eru seldar til kynlífsánauðar, verkafólk er sent í þrælavinnu og börnum er smyglað yfir landamæri í misjöfnum tilgangi. Stundum eru viðkomandi sendir nauðugir en oft er fólk tælt til að yfirgefa erfiðar aðstæður með von um betra líf annars staðar.

Fátækir íbúar landanna sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum eru í sérstakri hættu. Þar sem lífsskilyrði eru nöpur og horfur slæmar freistast ungt fólk til að láta ginnast af gylliboðum.

Rauði krossinn á Íslandi styður unga sjálfboðaliða í Gomel-héraði í Hvíta-Rússlandi við að fræða ungmenni um hættur mansals. Þá fá fórnarlömb mansals aðstoð þegar þau koma aftur heim, stundum eftir áralanga ömurlega vist erlendis.

Ungmenni eru frædd um hættuna á mansali með margvíslegum aðferðum. Fjölmiðlar eru hvattir til að fjalla um málið, hringborðsumræður haldnar, efnt til vitundarvakningar í skólum, veggspjöldum dreift og margvíslegar uppákomur nýttar til að ná til ungs fólks sem er í mestri hættu.

Þolendur mansals fá við heimkomu sálrænan stuðning, aðgang að lögfræðiaðstoð og beina hjálp til að koma undir sig fótunum á ný. Þá eru skipulagðir sjálfshjálparhópar þolenda, til að þeir geti notið styrks hver af öðrum. Verkefnið er kostað af íslenskum stjórnvöldum til þriggja ára, samkvæmt samstarfsyfirlýsingu sem Rauði krossinn og utanríkisráðuneytið gerðu snemma árs 2010.

Rauði krossinn í Hvíta-Rússlandi heldur úti fimm miðstöðvum vegna baráttunnar gegn mansali, sem kallaðar eru Hjálpandi hendur. Aðstoðin frá Íslandi er við miðstöðina í Gomel, en það svæði varð fyrir mikilli geislun þegar Tsérnóbýl kjarnorkuverið sprakk. Kjarnorkuverið er handan landamæranna við Úkraínu.

Leitað að krabbameini eftir Tsérnóbyl slysið
Þó að rúmur aldarfjórðungur sé liðinn síðan kjarnorkuslysið varð í Tsérnóbýl í gömlu Sovétríkjunum þá eru afleiðingar slyssins enn að koma í ljós. Á vegum Rauða krossins fara sjö rannsóknarstofur á hjólum á milli þorpa á sléttunum í kringum Tsérnóbýl og leita að merkjum skjaldkyrtilskrabba í fólki.

Stuðningur Rauða krossins á Íslandi við starfið hefur skipt miklu máli enda er oft erfitt að halda úti hjálparstarfi árum saman, jafnvel þó að þörfin hafi síst minnkað.

Læknar ferðast um á bílum sem útbúnir eru með tækjum til að skanna skjaldkirtil fólks, sem margt var á barnsaldri þegar slysið varð. Geislavirkt joð sem þessi börn urðu fyrir á þeim tíma getur orðið þess valdandi að krabbamein myndist í skjaldkirtli 20 – 30 árum síðar.   

Hlýja frá Íslandi
Sjálfboðaliðar Rauða krossins á Íslandi um allt land prjóna og safna fatnaði til að senda í kuldann og neyðina í Hvíta-Rússlandi. Fatnaðurinn er sendur í vel merktum pokum fyrir ungabörn og eldri krakka. Í ungbarnapökkunum eru peysa, húfa, sokkar, vetlingar og annar fatnaður sem sjálfboðaliðar Rauða krossins á Íslandi hafa prjónað. Þarna eru líka handklæði, teppi og annað sem kemur sér vel í hvítrússneska vetrinum. Eldri börnin fá peysu, bol, húfu, vetlinga og önnur hlý föt.

Fatnaðnum er dreif til fjölskyldna í Hvíta-Rússlandi sem eiga um sárt að binda. Í flestum tilvikum er um að ræða barnmarga foreldra, sem ekki geta keypt fatnað á börnin sökum fátæktar. Einnig njóta munaðarlaus börn góðs af fatnaðinum frá Íslandi.
 

2000 fatapakkar til barna í Hvíta-Rússlandi