Hvar störfum við
Ísland
Gambía
Haítí
Hvíta-Rússland
Kákasuslöndin
Malaví
Palestína
Sierra Leone
Sómalía

Malaví

Aðstoð Rauða krossins á Íslandi í Malaví felst í stuðningi við munaðarlaus eða illa stödd börn, fræðslu og forvarnir um smitleiðir alnæmis og aðstoð við alnæmissmitaða.

Styrkja starfið malavi.jpg
 
 

Malaví er þéttbýlasta land Afríku og eitt það fátækasta í heiminum. Alnæmisvandinn hefur höggvið djúp skörð í raðir ungs fólks og talið er að hálf milljón barna í landinu hafi misst foreldra sína, þar af helmingur vegna alnæmis. Heilbrigðisþjónusta er af skornum skammti til sveita.

Rauði krossinn á Íslandi styður hjálparstarf malavíska Rauða krossins í héruðunum Chiradzulu og Mwanza. Aðstoðin felst í stuðningi við munaðarlaus eða illa stödd börn, fræðslu og forvarnir um smitleiðir alnæmis og aðstoð við alnæmissmitaða.

Í Chiradzulu er unnið með 42 þúsund íbúum í 96 þorpum en í Mwanza með 50 þúsund íbúum í 48 þorpum. Sjálfboðaliðar Rauða krossins veita alnæmissjúkum heimahlynningu. Ungmenni fá fræðslu og upplýsingar um lífsleikni, kynhegðun og fleira, einkum í gegnum jafningjafræðslu. Alnæmissmitaðir mynda stuðningshópa og  njóta til þess stuðnings sjálfboðaliða. Sjálfboðaliðar fá þjálfun til að styðja munaðarlaus börn, meðal annars í athvörfum Rauða krossins. Fræðsla til sjálfboðaliða miðar einnig að því að uppræta kynbundið ofbeldi.

Að auki er alnæmissmituðum í Chiradzulu veitt aðstoð til að bæta matvælaöryggi sitt. Skjólstæðingar fá útsæði og áhöld, komið er upp sameiginlegum görðum til ávaxta- og grænmetisræktunar fyrir sjálfshjálparhópa smitaðra. Vatnssöfnunar- og áveitukerfum er komið upp. Sameiginlegar frægeymslur setttar á fót og veitt þjálfun í framleiðslu og geymslu matvæla til að auka uppskeru og næringargildi. Stuðlað að umhverfisvænni eldunaraðferðum með framleiðslu eldstóa sem þurfa mun minni eldivið en hefðbundnar aðferðir.