Hveragerðisdeild
Stjórn
Verkefni
Fréttir

Verkefni

Neyðarvarnir og neyðaraðstoð:
Ef til neyðarástands kemur vegna náttúruhamfara, slysa eða af öðrum ástæðum er Hveragerðisdeild, ásamt sjálfboðaliðum, tilbúin til aðstoðar. Vinna sem veitt er í  neyðarvörnum og neyðaraðstoð er í samræmi við samning um almannavarnir. Uppfærsla neyðarvarnaráætlunar er í samstarfi við Árnesingadeild og námskeið eru haldin í samræmi við hana.

Heimsóknavinir:
Sjálfboðaliðar fara í heimsóknir til einstaklinga sem eru félagslega einangraðir til þess að rjúfa einangrun og sýna vináttu. Hópstjóri er Hallbjörg Þórhallsdóttir.

Föt sem framlag:
Sjálfboðaliðar prjóna og sauma föt  í ungbarnapakka sem síðar verða sendir til Gambíu.  Samkoma er í Rauða kross húsinu, Austurmörk 7 á neðri hæð, á miðvikudögum frá 13:00-16:00.

Fræðsluverkefni:
Námskeið eru haldin í almennri skyndihjálp, sálrænum stuðningi og börn og umhverfi. Leiðtoganámskeið eru haldin fyrir stjórn, verkefnastjóra og sjálfboðaliða.

Þjónustumiðstöð fyrir fólk í atvinnuleit:
Í samvinnu við Hveragerðisbæ hefur Hveragerðisdeildin opnað þjónustumiðstöð fyrir fólk í atvinnuleit. Er miðstöðin á neðri hæð Rauða kross hússins í Hveragerði og er opin á mánudögum og fimmtudögum frá 09:00 til 12:00.