Hver erum við?
Alþjóðleg hreyfing
Landsskrifstofa
Starf í deildum
Merkið

Hver erum við

Hreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans er útbreiddasta og fjölmennasta mannúðarhreyfing heims með starfsemi í flestum ríkjum. Tilgangur hreyfingarinnar er að vernda líf og heilsu berskjaldaðra hópa og tryggja virðingu fyrir mannlegu lífi. Hreyfingin byggist á sjálfboðnu starfi.

Landsfélög Rauða krossins og Rauða hálfmánans veita aðstoð og dreifa hjálpargögnum í hverju landi fyrir sig. Þannig tryggir Rauðakrosshreyfingin að hjálpin komist beint til skila til þeirra hópa sem mest þurfa á aðstoð að halda. Landsfélög Rauða krossins og Rauða hálfmánans eru 187. Einungis eitt Rauða kross félag má starfa í hverju landi. Saman mynda Alþjóðaráð Rauða krossins, Alþjóðasambandið og landsfélögin alþjóðahreyfingu Rauða krossins og Rauða hálfmánans. Stofnandi Rauða krossins var Henry Dunant.

Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC) var stofnað 20. október 1863 og Alþjóðasamband landsfélaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans var stofnað árið 1919.

Alþjóðlegt hjálparstarf Rauða kross Íslands nær á hverju ári til þúsunda fórnarlamba hamfara, ófriðar og örbirgðar um allan heim.