Helstu fréttir
Fréttayfirlit-
Skyndihjálparkennsla hjá Móral
11.05.2012Mórall - ungmennahópur Kjósarsýsludeildar - fékk góða heimsókn nú í vikunni þegar sjálfboðaliðar úr Skímu, skyndihjálparhóp RKÍ, komu á fund hjá þeim. Krakkarnir fræddust um endurlífgun, eitranir og ýmislegt fleira. Allir fengu að æfa blástursaðferðina og að setja slasaðan einstakling í læsta hliðarlegu. Það var gaman að sjá hvað krakkarnir tóku virkan þátt í kennslunni og spurðu margra góðra spurninga sem Skíma svaraði eftir föngum.
Lesa nánar -
Sumarið á næsta leiti – Gleðidaganámskeið framundan
24.04.2012Barnavinafélagið Sumargjöf styrkir Rauða krossinn um 500.000 kr. til að auðvelda deildum að bjóða fjölskyldum uppá hið vinsæla námskeið Gleðidaga, þátttakendum að kostnaðarlausu.
Lesa nánar
Námskeiðin Gleðidagar, hvað ungur nemur gamall temur, eru fyrir aldurshópinn 7 – 12 ára og hafa verið haldin á vegum Rauða krossins hvert sumar eftir efnahagshrunið eða frá árinu 2009. -
Börn og umhverfi
11.04.2012Skráning er nú hafin á námskeiðið Börn og umhverfi. Námskeiðið er fyrir ungmenni fædd árið 2000 og fyrr sem gæta yngri barna.
Á námskeiðinu er farið í ýmsa þætti er varða umgengni og framkomu við börn, aga, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng. Einnig er lögð áhersla á slysavarnir og algengar slysahættur í umhverfinu. Námskeiðið er 16 kennslustundir, fer fram í Þverholti 7 og kostar 8.500 krónur. Innifalið: Námsgögn og hressing.
Lesa nánar -
Mokuðu snjó til styrktar Rauða krossinum
02.04.2012Þeir Tómas Valgeir Kristjánsson, Þorsteinn Jónsson og Jóel (ekki á mynd) færðu Rauða krossinum 2.030 krónur sem þeir fengu fyrir að moka snjó hér í Mosfellbæ. Við þökkum þessum duglegu strákum kærlega fyrir þeirra framlag!
Lesa nánar