Helstu fréttir
Fréttayfirlit-
Slípa íslenskuna í spjalli
22.02.2012Sjálfboðaliðar Rauða krossins í Kópavogi kenna nýbúum málið. Afslappað andrúmsloft og áherslan á að efla færni með samræðu.
Greinin birtist í Morgunblaðinu 22.02.2012
Lesa nánar -
Tombóla
20.02.2012Vinkonurnar Áróra, Berglind Freyja og Sólveig Rut héldu tombólu á dögunum. Þær voru í rúma 5 tíma fyrir utan Stöðina við Smáralind. Starfsfólk á Stöðinni tók þeim mjög vel og gáfu þeim m.a. kakó. Stúlkurnar komu í Rauðakrosshúsið í Hamraborg 11 með afraksturinn sem var rúmlega 10.000kr.
Lesa nánar -
Bjargaði lífi móður sinnar
15.02.2012Theodór Fannar Eiríksson var meðal þeirra sem tilnefndir voru til skyndihjálparmanns ársins 2011. Theodór tók á móti viðurkenningu frá Rauða krossi Íslands í Rauðakrosshúsinu í Kópavogi fyrr í vikunni. Viðurkenninguna hlaut hann fyrir að bjarga lífi móður sinnar þegar eldur kom upp í íbúð þeirra og læstist í móður hans. Viðbrögð Theodórs voru hárrétt en hann rúllaði móður sinni inn í teppi og slökkti þannig eldinn og kom henni út úr húsinu. Atvikið átti sér stað í desember sl.
Lesa nánar -
Bjargaði lífi dóttur sinnar með hjartahnoði
11.02.2012Rauði kross Íslands hefur valið Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir að sýna hárrétt viðbrögð á neyðarstundu þegar dóttir hans fór í hjartastopp á heimili þeirra þann 29. janúar 2011. Gísli tók við viðurkenningu Rauða krossins í göngugötunni í verslunarmiðstöðinni Smáralind kl. 14:00 í dag á hátíðardagskrá Neyðarlínunnar og samstarfsaðila um 112-daginn.
Lesa nánar -
Nýir söngvinir bætast í hópinn hjá Kópavogsdeild
09.02.2012Tveir nýjir söngvinir hafa bæst í hóp heimsóknavina Kópavogsdeildar sem taka þátt í söngstundum á dvalarheimilum fyrir aldraða. Einnig hefur nýr sjálfboðaliði sem spilar á gítar hafið störf í sambýlinu fyrir aldraða í Roðasölum. Þar spilar hann undir og syngur með vistmönnum og fleiri sjálfboðaliðum. Hann leysir einnig af í hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð á meðan leitað er að öðrum gítarspilara til þess að sjá um söngstundina þar á fimmtudögum.
Lesa nánar -
Eldhugastarf í félagsmiðstöðvum Kópavogs
01.02.2012Hópur ungra sjálfboðaliða Kópavogsdeildar hefur tekið að sér umsjón með kynningarstarfi Eldhuga í félagsmiðstöðvum bæjarins. Hópurinn hefur undirbúið sig vel og samanstendur af sjálfboðaliðum deildarinnar sem sumir hverjir hafa tekið þátt í starfinu frá unga aldri.
Lesa nánar -
Tombóla
01.02.2012Vinkonurnar Viktoría Rós Antonsdóttir og Embla Helgadóttir Isaksen í 3.SGG í Álfhólsskóla héldu tombólu á dögunum. Þær seldu jólakort, afmæliskort og listaverk sem þær höfðu sjálfar búið til. Afraksturinn var um 4000kr sem þær færðu Rauða krossinum til þess að hjálpa öðrum.
Lesa nánar