Verkefni sjálfboðaliða okkar eru fjölbreytt. Við höfum þörf fyrir sjálfboðaliða á öllum aldri og af báðum kynjum og leggjum áherslu á að fá hverjum og einum verkefni við hæfi. Starfið er sjálfboðið en við veitum sjálfboðaliðum okkar nauðsynlega þjálfun og fræðslu án endurgjalds. Sjálfboðaliðar okkar starfa samkvæmt samningi sem kveður á um gagnkvæm réttindi og skyldur.
Öllum samningsbundnum sjálfboðaliðum deildarinnar stendur til boða að sækja námskeið um hugmyndir og markmið Rauða kross hreyfingarinnar, námskeið í skyndihjálp og sálrænni skyndihjálp. Auk þess bjóðum við sjálfboðaliðum okkar námskeið sem tengjast tilteknum verkefnum, svo sem námskeið fyrir fjöldahjálparstjóra, námskeið um heimsóknaþjónustu og leiðtoganámskeið.
Við vitum að starf sjálfboðaliðanna okkar skilar árangri og veitir þeim ánægju sem njóta aðstoðar þeirra. Sú ánægja er gagnkvæm.
Ég vil gerast sjálfboðaliði!