Viltu tala meiri íslensku? er verkefni þar sem sjálfboðaliðar hitta fólk af erlendum uppruna til að tala saman á íslensku. Markmiðið er að gefa þeim sem vilja læra meiri íslensku tækifæri til að nota málið og auka við orðaforða sinn. Samverurnar eru einu sinni í viku.
Þeir sem vilja nýta sér þessa þjónustu geta haft samband við deildina í síma 554 6626 eða á kopavogur@redcross.is. Þeir sem vilja gerast sjálfboðaliðar í þessu verkefni eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við deildina.