Mörg verkefni deildarinnar snúa að börnum og ungmennum. Deildin stendur að verkefnum sem miða að því að aðstoða börn, ungmenni og ungt fólk í vanda, svo sem í Fjölsmiðjunni en á undanförnum árum hefur deildin veitt Fjölsmiðjunni veglega styrki til þess að byggja upp starfið.
Enter
Í Enter eru ungir innflytjendur á aldrinum 9-12 ára. Verkefnið er unnið í samvinnu við mótttökudeild nýbúa í Álfhólsskóla og hófst árið 2004. Börnin koma einu sinni í viku eftir skóla í Rauðakrosshúsið í Kópavogi og fá meðal annars málörvun og fræðslu um tómstundastarf í Kópavogi í gegnum fjölbreytta leiki og vettvangsferðir. Markmið verkefnisins er að auðvelda börnum af erlendum uppruna aðlögun að íslensku samfélagi og virka þátttöku í því. Verkefnið er hugsað sem eins konar samfélagsfræðsla sem börnin og sjálfboðaliðar geta haft gagn og gaman af. Enter-hópurinn hittist alla miðvikudaga kl. 13.30-15.00.
Eldhugar
Eldhugar eru ungmenni í Kópavogi á aldrinum 13-16 ára. Íslensk og erlend ungmenni vinna saman að því að byggja betra samfélag án mismununar og fordóma. Eldhugar hafa meðal annars gefið út blað í eigin nafni, opnað vefsíðu um Eldhuga og sýnt verk sín í Smáralind. Vorið 2011 verða Eldhugar með jafningjafræðslu inn í félagsmiðstöðvum Kópavogs.
Plúsinn
Plúsinn er sérhannaður grundvöllur fyrir fólk á aldrinum 16-24 ára til þess að taka þátt í sjálfboðnu starfi og hafa áhrif á samfélagið sitt með ýmsum hætti með markmið og hugsjónir Rauða krossins að leiðarljósi. Hægt er að taka þátt í ýmsum hópum innan Plússins, eins og stýrihópi, hönnunarhópi, fræðsluhópi og námsvinahópi.
Samstarf við MK
Nemendur í Menntaskólanum í Kópavogi geta valið áfanga um sjálfboðið Rauða kross starf,
SJÁ 102. Í áfanganum vinna nemendur sjálfboðin störf eins og aðstoð við aldraða, langveik börn í Rjóðrinu, stuðning við fólk með geðraskanir í Dvöl eða taka þátt í að stýra verkefnum í Enter og Eldhugum. Lokaverkefni nemendanna hefur verið að skipuleggja markað í Rauðakrosshúsinu í Hamraborg til styrktar ungmennum í neyð erlendis og fleirum. Nemendurnir hafa bæði haldið fatamarkað þar sem notuð föt voru seld og handverksmarkað þar sem handverk var söluvaran. Lokaverkefni getur líka verið kynningar á starfinu. Samstarf deildarinnar við MK er einnig í formi fræðslu um verkefni Rauða krossins í ýmsum áföngum í sálfræði og félagsfræði. Hluti af námi nemenda í lífsleikni hefur verið þátttaka í landssöfnuninni Göngum til góðs.
Fræðsla og fjölbreytt verkefni 
Deildin býður ungu fólki uppá margvíslega fræðslu. Hún annast kennslu í skyndihjálp í grunnskólunum, fræðir ungt fólk um hugmyndir Rauða krossins, mannúðarmál, fjölbreytta menningu og umhverfismál.
Ungt fólk hefur iðulega brugðist vel við þegar deildin hefur þurft á kröftum þess að halda, ekki síst í landssöfnunum á borð við Göngum til góðs. Síðast en ekki síst bjóðum við ungt fólk velkomið til sjálfboðinna starfa!