Ólafsfjarðardeild
Stjórn
Fréttir

Rauði krossinn Ólafsfirði

Aðalgata 1 n.h.
625 Ólafsfirði
Kennitala 620780-1709
Styrkja starfið

Ólafsfjarðardeild Rauða krossins var stofnuð 24. september 1961 en þar urðu ákveðin þáttaskil í sögu félagsins því fyrsti formaður Ólafsfjarðardeildar var kona, Guðlaug Gunnlaugsdóttir. Að kunnri hógværð kvenna hafði hún að vísu algjörlega hafnað því að taka við oddvitastarfinu en var kjörin formaður engu að síður á stofnfundi deilarinnar.

Verkefni

Heimsóknarvinir:  Vantar fólk í þetta verkefni áhugasamir hafi samband við Sigríði Mundu.

Rauði krossinn er kynntur í grunnskólanum. Rut María Pálsdóttir hjúkrunarfræðingur fer og ræðir við nemendur. Hún fer einnig og heimsækir börn í leikskólanum.

Neyðarvarnir- neyðarvarnaráætlun uppfærð, tekið þátt í æfingum á starfsvæði deildarinnar með öðrum viðbragðsaðilum. Boðið upp á námskeið fyrir stuðningsaðila deildarinnar á áætluninni eftir þörfum.

Neyðaraðstoð- neyðarbeiðnum svarað jafnt innanlands sem utan.

Skyndihjálp- boðið er upp á námskeið eftir þörfum hverju sinni. Fólki er bent á að setja sig í samband við deildina ef óskir koma um slíkt.

Sala á minningarkortum Rauða krossins.

Fatamóttaka, fatagámur er staðsettur á gámsvæði í Ólafsfirði.

Föt sem framlag: Pakkað er í ungbarnapakka sem að fara til Hvíta Rússlands. Einnig er pakkað í pakka til barna á aldrinum 2-12 ára. Þeir sem hafa áhuga á að starfa við þetta verkefni hafi samband við stjórnina. Einnig þiggur deildin prjónaða sokka, vettlinga, húfur, teppi, handklæði. Deildin þiggur jafnframt gömul sængurver eða náttsloppa sem saumað er úr.

Svæðisverkefni: Rekstur sumarbúða fyrir fatlaða einstaklinga á Löngumýri, málsvarastarf, neyðarvarnir - námskeið  fjöldahjálp og félagslegum stuðningi, skyndihjálp - skyndihjálparhópur og námskeiðahald eftir þörfum hverju sinni, deildarnámskeið og heimsóknarvinir.