Öxarfjarðardeild var stofnuð 18. mars 1976. Í kjölfar Kröfluelda sem hófust rétt fyrir jól árið 1975 og jarðskjálfta sem þeim fylgdu, þar sem jarðskjálfti við Kópasker bar hæst, var farið að huga að stofnun Rauðakrossdeildar á svæðinu. Fyrsti formaður var Helga Björnsdóttir, Ásgarði, Kópaskeri.
Deildin hefur aðstöðu í húsi björgunarsveitarinnar á Kópaskeri.
Starfssvæði deildarinnar eru sveitirnar við Öxarfjörð ásamt Melrakkasléttu að sveitarfélagsmörkum Norðurþings og Svalbarðshrepps. Sjálfstæð deild var á sínum tíma á Raufarhöfn en hún sameinaðist Öxarfjarðardeild árið 2007.