Samtöl og fjölskylduráðgjöf
Starf Fjölskyldumiðstöðvar miðar að því að aðstoða og styðja barnafjölskyldur í vanda, s.s. vegna:
- samskiptavanda
- uppeldisráðgjafar til foreldra
- skilnaðar- og forsjármála
- líðan í skóla
- vímuefna- og áfengisneyslu ungmenna
- barna sem sýna andfélagslega hegðun
- geðrænna erfiðleika
Hvernig nýti ég mér þjónustu Fjölskyldumiðstöðvar?
Foreldrar og einstaklingar hafa samband símleiðis og óska eftir aðstoð. Í framhaldinu er fjölskyldunni boðið uppá 4 - 6 viðtöl hjá ráðgjöfum Fjölskyldumiðstöðvar. Þjónustan er opin öllum fjölskyldum og er þeim að kostnaðarlausu. Fyllsta trúnaðar er gætt.
Markmið
Markmið Fjölskyldumiðstöðvar er að bjóða aðgengilega ráðgjöf fyrir fjölskyldur, styrkja bjargráð innan þeirra og veita markvissa leiðsögn um úrbætur. Hugmyndafræði Fjölskyldumiðstöðvar er í anda forvarna og leggur hún fjölskyldum lið við að leysa vanda sem fyrst, meðan þær búa yfir styrk og von til að gera það af eigin rammleik svo að koma megi í veg fyrir að mál þróist á verri veg.
Hópastarf
Foreldrum og börnum stendur til boða að taka þátt í hópastarfi á vegum Fjölskyldumiðstöðvarinnar. Markmiðið er að styrkja foreldra í uppeldishlutverkinu með umræðum og fræðslu í hóp með öðrum sem eru að fást við svipuð viðfangsefni í uppeldinu. Með hópastarfi unglinga er markmiðið að styrkja heilbrigða og jákvæða sjálfsímynd þeirra.