Konukot, næturathvarf fyrir heimilislausar konur - samstarfsverkefni Rauða krossins í Reykjavík og Reykavíkurborgar.
Hér má sjá myndband sem gert var um starfsemi Konukots á vordögum 2010. Höfundur þess er Árni Þór Theodórsson kvikmyndagerðarmaður.
Konukot er ætlað konum sem eiga hvergi höfði sínu að halla og þurfa stað til að sofa á. Flestar þeirra stríða við vandamál tengd neyslu áfengis og/eða fíkniefna. Athvarfið er opið frá kl. 17:00 til kl.11:30 daginn eftir. Boðið er upp á kvöldverð og léttan morgunverð. Konur geta þvegið af sér og farið í sturtu, auk þess sem þær geta fengið fatnað, sem Fataflokkun Rauða krossins útvegar, ef á þarf að halda. Neysla áfengis og annarra vímuefna er ekki leyfð í athvarfinu, en konum er ekki meinaður aðgangur þó þær séu undir áhrifum þegar þær mæta á staðinn.
Í Konukoti er reynt að skapa þeim sem þar dvelja þægilegt og heimilislegt andrúmsloft, þar sem grundvallarmarkmið Rauða krossins eru höfð að leiðarljósi. Starfsmenn Konukots geta aðstoðað við að hafa samband við lækni, meðferðaraðila, Geðdeild eða sambærilega aðila ef gestur óskar eftir því. Einu sinni í viku mæta félagsráðgjafar frá Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða í athvarfið og bjóða aðstoð þeim gestum sem hana vilja þiggja.
Í Konukoti er unnið eftir skaðaminnkandi hugmyndafræði(harm reduction). Hugmyndafræðin beinist að því að draga úr eða lágmarka heilsufarslegan, félagslegan og fjárhagslegan skaða sem vímuefnaneysla veldur einstaklingi eða samfélögum. Í skaðaminnkandi nálgun er sjónum beint að afleiðingum og áhrifum fíknihegðunar en ekki á notkunina sem slíka. Markmið skaðaminnkunar er fyrst og fremst að auka lífsgæði neytanda.
Frá október 2009 hefur verið starfrækt nálaskiptiþjónusta í Konukoti í samstarfi við Frú Ragnheiði. Í nálaskiptiþjónustunni er boðið upp á hreinan sprautubúnað, smokka og ráðgjöf um örugga sprautunotkun og blóðborna sjúkdóma eins og HIV og lifdrabólgu C.
Reykjavíkurdeild Rauða krossins setti Konukot á fót og opnaði formlega þann 10. desember 2004. Forsaga Konukots er sú að gerðar höfðu verið þarfagreiningar og rannsóknir sem leiddu í ljós að fjöldi heimilislausra kvenna væru á vergangi í Reykjavík og ákvað stjórn Reykjavíkurdeildar Rauða krossins á fundi vorið 2004 eftir tveggja ára undirbúningstímabil og viðræður við marga aðra aðila um samstarf að opna athvarfið hið fyrsta. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar útvegaði húsnæðið að Eskihlíð 4 um haustið 2004 og var það samkomulag milli borgarinnar og Reykjavíkurdeildar Rauða krossins að um yrði að ræða tveggja ára tilraunaverkefni og aðkoma borgarinnar eða yfirtaka yrði skoðuð að þeim tíma loknum.
Þann 28. september 2006 gerðu Velferðarsvið Reykjavíkurborgar og Rauða krossins í Reykjavík með sér samning þess efnis að Reykjavíkurdeild Rauða krossins sér áfram um rekstur Konukots en fær rekstrarfé frá Velferðarsviði borgarinnar.
Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri Konukots, Kristín Helga Guðmundsdóttir í síma 545-0409 / 861-0400 eða í tölvupósti.