Skagafjarðardeild Rauða krossins var stofnuð 11. júní 1940 og er því ein af elstu deildum félagsins. Fyrsti formaður deildarinnar var Torfi Bjarnason, héraðslæknir og voru stofnfélagar 53 talsins.
Deildin á húsnæði að Aðalgötu 10. Þar er aðstaða til móttöku og flokkunar á fatnaði og skrifstofa. Starfssvæði deildarinnar er eins og nafnið ber með sér Skagafjörður.
Öflugt sjálfboðaliðastarf fer fram hjá deildinni og ber þar hæst starf heimsóknavina og prjónahóps auk hefðbundinna verkefna í tengslum við skyndihjálparfræðslu og neyðarvarnir.
Fréttir
Fréttayfirlit-
112 dagurinn í Skagafirði
12.02.2013 -
Námskeið i skyndihjálp og endurlífgun
06.11.2012 -
Rauði krossinn kynnir starf sitt í Skagafirði
04.05.2012 -
Héldu tombólu til styrktar prjónahóp Skagafjarðardeildar
31.10.2011 -
Tómstundahópur Rauða krossins fær styrk
31.05.2011