Neyðarvarnir
Ef til neyðarástands kemur vegna náttúruhamfara, slysa eða af öðrum ástæðum er Stöðvarfjarðardeild, ásamt sjálfboðaliðum, tilbúin til aðstoðar. Sjálfboðaliðarnir vinna að neyðarvörnum samkvæmt samningi við Almannavarnir ríkisins, opna fjöldahjálparstöð í grunnskólanum og veita þar ýmsa aðstoð og aðhlynningu. Deildin hefur á að skipa skráðum einstaklingum, sérfræðingum og fagfólki, sem eru tilbúnir að bregðast við þegar á þarf að halda. Neyðarvarnanefnd hefur umsjón með skipulagi neyðarvarna á vegum deildarinnar.
Neyðaraðstoð erlendis
Deildin tekur þátt í neyðaraðstoð Rauða kross Íslands erlendis, m.a. þegar beiðnir berast frá landsskrifstofu. Deildin hefur nýlega tekið þátt í að fjármagna neyðaraðstoð í Írak og í löndum í sunnanverðri Afríku þar sem hungursneyð hefur geisað.
Fatasöfnun
Reglulega sendum við út auglýsingu þar sem við minnum fólk á fatasöfnun okkar. Deildin tekur allt árið við notuðum fatnaði. Honum er safnað saman í húsakynnum deildarinnar í Sólvangi og síðan send í fataflokkunarstöð Rauða krossins. Við sendum þau frá okkur flokkuð og merkt.
