Styrkja starfið
Vera mannvinur
Gefa til hjálparstarfs
Minningarkort
Gefa föt
Halda tombólu
Rauða kross vörur
Gjafabréf

Börn styrkja börn

tomboluborn_bio_07_IMG_4291.jpg
Laugarásbíó hefur undanfarin ár boðið tombólubörnum á höfuðborgarsvæðinu á bíósýningu á degi sjálfboðaliðans 5. desember. Tombólubörn eru mikilvægir sjálfboðaliðar Rauða krossins.

Um það bil 600 börn halda tombólur fyrir Rauða krossinn á hverju ári. Þau eru yngstu sjálfboðaliðar Rauða krossins og hafa í gegnum árin sýnt ótrúlega hugmyndaauðgi þegar kemur að fjáröflun fyrir gott málefni.

Stuðningur tombólubarna á hverju ári er Rauða krossinum ákaflega mikils virði og er félagið þakklátt fyrir eljuna og dugnaðinn sem liggur að baki hverri tombólu og fjáröflun þessara yngstu sjálfboðaliða okkar.

Tombólubörnin söfnuðu rúmlega 1 milljón króna á síðasta ári og allt það fé fór til styrktar börnum á Haítí. Þá hafa börnin verið dugleg að safna í ár fyrir aðstoð til barna vegna jarðskjálftans mikla í Japan og hungursneyðarinnar í Sómalíu.

Hér er hægt að sjá myndir af börnunum:

Árið 2012

Árið 2011

Árið 2010

Árið 2009

Árið 2008

Árið 2007