Rauða kross vörur
Bílar
Hleðslutæki
Skyndihjálpartaska
Úr vísnabók heimsins

Vandaðar vörur til styrktar starfi Rauða krossins

Skyndihjálpartaska er nauðsyn í hverju húsi og í hverjum bíl. USB hleðslutæki í bílinn kemur í veg fyrir að farsími, myndavél eða önnur raftæki verði rafmagnslaus þegar þú ert á ferðinni. Og litlu umhverfisvænu viðarbílarnir eru sterk, litrík og endingargóð leikföng sem gleðja smáfólkið.

Alla þessa hluti má nálgast í afgreiðslu Rauða krossins, Efstaleiti 9, Reykjavík, sími 570 4000. Bílana má einnig kaupa í versluninni Lítil í upphafi á Skólavörðustíg 5, Reykjavík og USB hleðslutækin í verslunum Símans og Vodafone.

Með því að kaupa þessa hagnýtu hluti styrkir þú starf Rauða krossins og lætur gott af þér leiða.

Smellið á myndirnar hér fyrir neðan til að skoða nánar.

RKI_Bilar_480.jpg

Leikfangabíll úr viði

Þessir fallegu leikfangabílar úr viði eru seldir sem hluti af fjármögnun Rauða kross Íslands. Það er tilvalið að gleðja smáfólkið með Rauða kross bílum á afmælisdaginn, jólum eða við önnur tækifæri og láta gott af sér leiða um leið.

Nánar
RKI_Hledslutaeki.png

USB hleðslutæki í bílinn

USB hleðslutæki í bíla með tveimur USB tengjum. Passar fyrir öll tæki sem hægt er að hlaða í gegnum USB tengi t.d. Mp3 spilara, myndavélar, tölvur, GPS, GSM síma, smartsíma og fleira. Auk þess fylgja nokkur algeng millistykki með í pakkanum.

Nánar
RKI_Skyndihjalpartaska

Skyndihjálpartaska

Skyndihjálpartaska er nauðsyn í hverju húsi og í hverjum bíl.

Nánar