Fjölmörg minni og stærri fyrirtæki starfa með Rauða krossinum um land allt og styrkja félagið hvert með sínum hætti. Þar má nefna beina fjárstyrki fyrirtækis, auglýsingastyrki og vörustyrki, og eins samstarf þar sem starfsmenn gefa dýrmætan tíma sinn með þátttöku í verkefnum Rauða krossins.
Ef þitt fyrirtæki eða starfsmannafélag vill styrkja starfið hafðu þá samband við Rauða kross Íslands í síma 570 4000.