Rauði krossinn er elsta og útbreiddasta mannúðarhreyfing í heimi, með starfsemi í 187 löndum. Rauði krossinn á Íslandi var stofnaður 10. desember 1924 og fyrsti formaður hans var Sveinn Björnsson, síðar forseti Íslands.
Grundvallarhugsjónir Rauða krossins eru sjö og eftir þeim fara 97 milljónir félagsmanna og sjálfboðaliða og 300 þúsund starfsmenn hreyfingarinnar um allan heim.
Þú getur tekið þátt í starfi Rauða krossins með því að styrkja starfið sem Mannvinur, vera félagi eða sjálfboðaliði.
Landsskrifstofa Rauða krossins í Reykjavík hefur það hlutverk að samræma verk 50 deilda hér á landi og taka þátt í starfi Alþjóða Rauða krossins fyrir Íslands hönd.