Rauði krossinn um allan heim byggir starf sitt á sameiginlegum grundvallarhugsjónum. Meginhlutverk hreyfingarinnar er að bregðast við hvers konar neyð, hvort heldur er af náttúru- eða mannavöldum og standa vörð um að aðstoða þá einstaklinga og/eða hópa sem verst eru staddir.
Ný stefna, sem gildir til ársins 2020, hlaut samþykki á aðalfundi Rauða krossins í maí 2011. Þar setur félagið sér það markmið að efla starf sitt og aðlaga það síbreytilegum aðstæðum og þörfum.