Landsnefnd um mannúðarrétt var stofnuð í apríl 2008. Hlutverk nefndarinnar er að breiða út þekkingu á alþjóðlegum mannúðarrétti, vera vettvangur umræðna um alþjóðlegan mannúðarrétt og veita stjórnvöldum ráðgjöf varðandi túlkun og framkvæmd mannúðarréttar. Nefndina skipa fulltrúar frá utanríkisráðuneyti, innanríkisráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti, velferðarráðuneyti og frá Rauða krossinum á Íslandi.
Helstu verkefni nefndarinnar eru:
- Að meta núgildandi lagaramma með tilliti til Genfarasamninganna, bókana þeirra og annarra mannúðarlaga.
- Að hafa leiðbeinandi hlutverk um túlkun og framkvæmd mannúðarréttar og standa vörð um mannúðarrétt á Íslandi.
- Að stuðla að kynningum á alþjóðlegum mannúðarrétti innan Stjórnarráðs Íslands og utan þess. Stuðla að rannsóknum á mannúðarrétti og setja fram tillögur að verkefnum sem hafa það að markmiði að efla þekkingu á mannúðarrétti, meðal annars á meðal lögreglu, friðargæslu og annarra hópa á ýmsum stigum menntakerfisins svo og á meðal almennings.
- Að fara gaumgæfilega yfir ákvæði íslenskra laga er varða stöðu Rauða krossins á Íslandi og meta þörfina á því að sett verði sérstök lög um Rauða krossinn.
- Að taka þátt í undirbúningi fyrir alþjóðaráðstefnur Rauða kross hreyfingarinnar.
Hér má lesa hverjir eiga sæti í landsnefndinni og einnig starfsreglur nefndarinnar
Ársskýrslu landsnefndarinnar fyrir árið 2009 má finna hér
Á árinu 2009 var unnin skýrsla um helstu samninga á sviði alþjóðlegs mannúðarréttar sem gerðir hafa verið og álitamál varðandi stöðu Íslands. Skýrsluna má nálgast hér