Hver erum við?
Alþjóðleg hreyfing
Landsskrifstofa
Starf í deildum
Merkið

Landsskrifstofa

Hlutverk landsskrifstofu Rauða kross Íslands að Efstaleiti 9 í Reykjavík er meðal annars að samhæfa og styðja starfsemi sjálfboðaliða í 44 deildum um allt land, stjórna alþjóðlegu hjálparstarfi félagsins og vinna í anda grundvallarhugsjóna Rauða krossins, sem eru þær sömu um heim allan.

Samkvæmt Genfarsamningunum má aðeins vera eitt félag Rauða krossins eða Rauða hálfmánans í hverju landi og það þarf að vera viðurkennt af ríkisstjórn landsins. Hið þéttriðna net Rauða krossins og Rauða hálfmánans nær til 97 milljóna félagsmanna og sjálfboðaliða. Hér á landi eru félagar rúmlega 20.000, Mannvinir um 6.500 og virkir sjálfboðaliðar um 3.000.

Ellefu manna stjórn er yfir félaginu og reikningar þess eru endurskoðaðir af alþjóðlegu endurskoðunarfyrirtæki. Formaður félagsins er Anna Stefánsdóttir. Framkvæmdastjóri er Hermann Ottósson.

Opnunartími landsskrifstofunnar er mánudaga til fimmtudaga frá 8:30 til 16:00 og föstudaga frá 8:30-15:00.