

Fræðsla er eitt kjarnaverkefna Rauða kross hreyfingarinnar. Rauði krossinn á Íslandi leggur einkum áherslu á grunnfræðslu til sjálfboðaliða með það að markmiði að kynna þeim grundvallarhugsjónir hreyfingarinnar, tilurð og störf Rauða krossins hér heima sem og á alþjóðavettvangi.
Skyndihjálp og sálrænn stuðningur er stór þáttur í fræðslustarfi félagsins, menntaðir eru fjöldahjálparstjórar sem vinna með Rauða krossinum á hættu- og neyðartímum og námskeið eru haldin fyrir börn og unglinga.