Flótti er gagnvirkur vefleikur um mannréttindi og reynslu flóttafólks. Leikurinn er einkum ætlaður börnum á grunnskólastigi.
Markmið leiksins er að stuðla að upplýstri umræðu um vanda flóttafólks með því að gefa nemendum tækifæri til að setja sig í spor þeirra og upplifa hvað í því felst að yfirgefa heimili sitt og leggja á flótta.
