Hjálpfús
Stundin okkar

Hjálpfús heimsækir leikskólann

Hjalpfus.jpg
Börnin á leikskólanum Álfaheiði í Kópavogi virða Hjálpfús fyrir sér.

Námsefnið „Hjálpfús heimsækir leikskólann“ er ætlað eldri börnum leikskólans.
Um er að ræða sex sögur sem sagðar eru af Rauða kross-stráknum Hjálpfúsi (fingurbrúðu), með aðstoð leikskólakennara (sögumanns).

Markmið námsefnisins er að kenna nemendum hversu mikilvægt það er að rétta fólki hjálparhönd þegar eitthvað bjátar á. Þannig vill Rauði krossinn leggja áherslu á að börn:

  • skilji hversu mikilvæg vinátta er
  • læri að setja sig í spor vina sinna og annarra
  • læri að taka tillit til fólks burtséð frá útliti, uppruna eða skoðunum
  • læri að vinna með öðrum í hópi
  • læri að hjálpa og gefa af tíma sínum til bágstaddra
  • fái innsýn í kjör barna í öðrum löndum

 

Mynd af Hjálpfúsi til að lita pdf

Deildir Rauða krossins færa öllum leikskólum landsins námsefnið að gjöf. Það inniheldur brúðu og kennsluefni með sex sögustundum sem eru:

  • Hjálpfús
  • Merki Rauða krossins
  • Mannúð
  • Þakklæti
  • Hjálparstarf
  • Slysavarnir og skyndihjálp

Gefið út af Rauða krossinum árið 2004
Höfundur: Sigríður María Tómasdóttir
Brúðuhönnun: Hallveig Thorlacius
Netfang: hjalpfus@redcross.is

Þættir um Hjálpfús voru teknir til sýningar í Stundinni okkar veturinn 2006-2007.