Fræðsla
Ef bara
Flótti vefleikur
Hjálpfús
Námskeið

Námskeið

Rauði kross Íslands gengst fyrir fjölda námskeiða á ári hverju. Námskeiðin taka fyrir allt frá grunnupplýsingum um skyndihjálp til þess að undirbúa tilvonandi sendifulltrúa til dvalar á fjarlægum slóðum. Hér verður gerð grein fyrir nokkrum námskeiðanna.

Hægt er að fá frekari upplýsingar um skyndihjálparnámskeiðin með því að smella hér.


Grunnnámskeið Rauða krossins
Öllum sem starfa fyrir Rauða kross hreyfinguna er gefinn kostur á að sækja grunnnámskeið. Á námskeiðinu er farið yfir upphaf Rauða krossins og ágrip úr sögu hreyfingarinnar, grundvallarmarkmið hans og alþjóðleg mannúðarlög, stefnu félagsins til 2010 og helstu áherslur í starfi félagsins innanlands og utan.

Skyndihjálp
Boðið er upp á margskonar vönduð og hagnýt námskeið sem sniðin eru að þörfum almennings og hópa, fagaðila og fyrirtækja, bæði hvað varðar lengd og efnistök. Á námskeiðunum er lögð áhersla á að kenna rétt viðbrögð í neyð og einfaldar aðferðir skyndihjálpar og sálræns stuðnings.


Endurlífgun
Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja tileinka sér aðferðir við endurlífgun, blástur og hjartahnoð.


Skyndihjálp og björgun fyrir starfsfólk sundstaða
Námskeiðið er sérstaklega fyrir sundlaugarverði og annað starfsfólk sundstaða og gagnlegt fyrir sundkennara og starfsfólk sumarnámskeiða fyrir börn og unglinga.


Slys og veikindi barna
Á námskeiðinu er meðal annars fjallað um varnir gegn slysum á börnum og orsakir
slysa almennt, þroska barna og slys sem tengjast aldri. Farið er í skyndihjálp við algengum barnaslysum. Þetta námskeið er einkar gagnlegt fyrir foreldra, dagforeldra, starfsfólk dagvistarstofnana, leiðbeinendur á leikjanámskeiðum, kennara og íþróttaþjálfara.


Sálrænn stuðningur
Námskeiðið hentar vel fyrirtækjum, starfsmannahópum og almenningi sem vilja öðlast þekkingu og færni í sálrænum stuðningi.


Almenn skyndihjálp og sálrænn stuðningur fyrir starfsfólk grunnskóla
Námskeið ætlað starfsfólki grunnskóla sem vill auka þekkingu sína í almennri skyndihjálp og sálrænum stuðningi.


Leiðbeinendanámskeið í skyndihjálp
Rauði krossinn heldur reglulega námskeið fyrir leiðbeinendur í skyndihjálp á tveggja ára fresti. Skilyrði fyrir þátttöku er fagmenntun á sviði heilbrigðismála eða kennslufræða.


Leiðbeinendanámskeið í sálrænum stuðningi
Skilyrði fyrir þátttöku í námskeiðinu er fagmenntun á sviði heilbrigðismála, svo sem sálfræði, félagseða uppeldisfræði og reynsla af áfallavinnu. Á námskeiðinu er leitast við að dýpka þekkingu og skilning þátttakenda á eðli áfalla og viðbrögðum einstaklinga við þeim.


Fjöldahjálparnámskeið
Fjöldahjálparstjórar stjórna starfi í fjöldahjálp og félagslegri aðstoð á neyðarstundu. Í því felst að setja upp móttökustaði (fjöldahjálparstöðvar), skrá niður upplýsingar eða veita aðhlynningu þeim sem hana þurfa. Námskeiðið er opið öllum þeim sem hafa áhuga á og vilja starfa með Rauða krossinum í þessum málaflokki.


Viðhorf og virðing
Námskeið sem er ætlað öllum þeim sem vilja vinna gegn fordómum og mismunun gagnvart minnihlutahópum, þar sem mannúð, hlutleysi og óhlutdrægni eru höfð að leiðarljósi.


Deildanámskeið Rauða krossins
Þessi námskeið eru haldin á svæðavísu og eru nauðsynleg öllum sem starfa í stjórnum deilda og/eða hafa umsjón með verkefnum á vegum félagsins. Markmið námskeiðanna er að styrkja deildafólk í störfum sínum og gera það hæfara til að takast á við verkefni sín og skyldur. Farið er yfir hugsjónir Rauða krossins, störf og hlutverk deilda, sjálfboðið starf og ræðumennsku.


Leiðtoganámskeið
Á námskeiðinu er lögð áhersla á fræðslu um mannleg samskipti og hlutverk leiðtoga sem stjórnendur sjálfboðaliða. Námskeiðið er liður í að efla og samræma stjórnun sjálfboðaliða í deildum um allt land.


Námskeið fyrir heimsóknavini
Á námskeiðunum er meðal annars greint frá tilgangi heimsóknavina og farið yfir leiðbeiningar og reglur sem þarf að hafa í huga í heimsóknum. Námskeiðin eru ætluð þeim sem hafa hug á að heimsækja félagslega einangrað fólk.


Námskeið fyrir sjálfboðaliða Hjálparsímans 1717
Sjálfboðaliðar Hjálparsímans taka allir 40 stunda undirbúningsnámskeið. Þar fræðast þeir um þunglyndi, kvíða og aðrar geðraskanir og fá æfingu í sálrænum stuðningi og viðtalstækni.


Á flótta
Á flótta er upprunalega danskur hlutverkaleikur sem gefur ungu fólki áaldrinum 13–18 áratækifæri á að upplifa hvernig það er að vera flóttamaður í einn sólarhring þar sem það upplifir hræðslu, angist, þreytu og aðrar tilfinningar sem flóttamenn jafnvel lifa við í mörg ár. Að leik loknum hafa þátttakendur öðlast nýja sýn á heim flóttamanna sem skilar sér í auknum skilningi og samúð með aðstæðum þeirra.


Börn og umhverfi
Námskeið fyrir börn 12 ára og eldri sem gæta yngri barna. Á námskeiðinu er farið í ýmsa þætti er varða umgengni og framkomu við börn, aga, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng. Einnig er lögð áhersla á slysavarnir og algengar slysahættur í umhverfinu.


Sumarbúðir fyrir fatlaða einstaklinga
Rauða kross deildir á Norðurlandi, Austurlandi og Suðurlandi reka sumarbúðir fyrir fatlaða einstaklinga á sumrin í Skagafirði og Stykkishólmi. Sumarbúðirnar eru öllum opnar en þeir sem búa við fötlun og einstaklingar með sérþarfir hafa forgang.

Sendifulltrúanámskeið
Rauði kross Íslands sendir einungis út vel þjálfaða og hæfileikaríka starfsmenn. Þeir sem sækjast eftir því að verða sendifulltrúar hjá félaginu þurfa að sækja sendifulltrúanámskeið Rauða krossins. Sendifulltrúar þurfa að hafa skilning á grundvallarhugmyndum og skipulagi Rauða krossins og Rauða hálfmánans. Á námskeiðinu eru rædd málefni, vandamál og ögrandi viðfangsefni sem þátttakendur þurfa að takast á við í þróunarvinnu, neyðaraðstoð eða á stríðstímum og þeim hjálpað að þróa færni sína í vinnu við þær aðstæður.


Öryggisnámskeið fyrir sendifulltrúa
Sendifulltrúar eru oft við störf á átakasvæðum þar sem öryggismál eru mjög mikilvæg. Á námskeiðinu er farið yfir hvernig eigi að haga sér við hinar ýmsu Aðstæður til að tryggja sem best öryggi á vettvangi.


Leiðbeinendanámskeið í barna-og ungmennastarfi
Námskeiðin eru fyrir leiðbeinendur frá deildumfélagsins sem þegar halda úti barna og ungmennastarfi og þeir sem hyggja á starf. Á námskeiðunum fá leiðbeinendur tækifæri til að kynna verkefni sín og miðla þekkingu og reynslu deilda. Farið er yfir hlutverk leiðbeinandans hvað varðar öryggi í starfi og skyldur og skoðuð handbók þess efnis.