Ársskýrslur Rauða krossins eru gefnar út í prentuðu formi ár hvert. Einnig er sagt mun ýtarlegar frá starfinu í skýrslu sem er aðgengileg á netinu.
Tilgangurinn með útgáfu ársskýrslu er að gefa innsýn í starf Rauða krossins. Reynt er að tiltaka alla þætti þess víðfeðma mannúðarstarfs sem fer fram í nafni félagsins á alþjóðavettvangi, í almennu innanlandsstarfi, á svæðisvísu eða í deildum félagsins sem eru 50 um allt land.
Starf Rauða krossins byggir á trausti almennings og því er mikilvægt að starfsemin sé gegnsæ og ársskýrslurnar aðgengilegar þeim sem vilja skoða þær. Nánari upplýsingar er að sjálfsögðu hægt að fá með því að skoða aðrar síður hér á vef félagsins eða með því að hafa samband.