Rauði krossinn á Djúpavogi
Kennitala 700981-0889
Rauði krossinn á Djúpavogi var stofnaður 22. september 1981 og fyrsti formaður stjórnar var Þórarinn Pálmason skrifstofustjóri. Deildin er staðsett í Mörk 14.
Meðal verkefna deildarinnar eru neyðarvarnir og er fjöldahjálparstöðin staðsett í grunnskólanum á Djúpavogi. Sjálfboðaliðar í neyðarvörnum fá þjálfun reglulega í samvinnu við aðrar deildir á Austurlandi.
Skyndihjálparnámskeið eru haldin fyrir almenning og fyrirtæki og fá elstu bekkir grunnskólans skyndihjálparnámskeið reglulega.
Fatasöfnunargámur er staðsettur við húsnæði deildar, Mörk 14 og sjálfboðaliðar sjá um að koma fötunum á bretti og Eimskip flytur þau endurgjaldslaust til fataflokkunar Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu.
Nokkrum sinnum á ári stendur deildin fyrir fjáröflun með fatamarkaði í húsnæði deildarinnar.
Stjórn
Hlutverk | Nafn | Netfang |
---|---|---|
Formaður | Ævar Orri Eðvaldsson | formadur.djupavogur@redcross.is |
Ritari | Jóhanna S. Reykjalín Ragnarsdóttir | |
Gjaldkeri | Helga Björk Arnardóttir | gjaldkeri.djupavogur@redcross.is |
Meðstjórnandi | Auður Ágústsdóttir | |
Meðstjórnandi | Ólöf Rún Stefánsdóttir |