Grunnmat á hundi

Námskeið

12 Sep
Location Viðjulundur 2, 600 Akureyri
Time 20:00 - 22:00

Grunnhundamat fyrir sjálfboðaliða hundavina verður haldið fimmtudaginn 12. september frá kl. 20:00-22:00 í húsnæði Rauða krossins við Eyjafjörð, Viðjulundi 2, Akureyri.

course-image
Fyrir sjálfboðaliðastarf hundavina er mikilvægt að hafa eins góðan undirbúning og hægt er. Til að byrja með þarf að mæta í grunnhundamat, sem er framkvæmt af reyndum sjálfboðaliðum í verkefninu. Þau meta hvort eigandi og hundur séu fær um að taka þátt. Vert er að taka fram að hundavinaverkefnið hentar ekki öllum hundum og ber að hafa í huga að það standast ekki öll matið. Sum fá síðan endurgjöf og þurfa að vinna í ákveðnum þáttum áður en þau geta setið hundanámskeiðið. Allt er þetta gert með hagsmuni gestgjafa og sjálfboðaliða að leiðarljósi.

Athugið að hundar þurfa að vera orðnir 2 ára gamlir. Gert er ráð fyrir 15 mín fyrir hvert mat.

Vinsamlegast sendið tölvupóst á soleybs@redcross.is og tilgreinið þann tíma sem hentar best (milli klukkan 20-22). Ef sá tími er ekki laus verður nýjum tíma úthlutað.

Mikilvægt er að hafa heilsufarsbók hunds með í grunnhundamat. Hundar skulu auk þess vera í stífum taumi (alls ekki í flexy taumi). Í grunnhundamati eru allir hundar í taumi, rétt eins og í öllum hundavinaheimsóknum á vegum Rauða krossins.

Tekið er á móti fyrirspurnum varðandi grunnhundamatið í tölvupósti, soleybs@redcross.is, eða í síma, 570 4272.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!