Áfallahjálparteymi Rauða krossins hlúði að aðstandendum og sjónarvottum eftir flugslys á Akureyri
Tíu manna áfallahjálparteymi Rauða krossins á Norðurlandi hlúði að aðstandendum og sjónarvottum eftir flugslys nálægt Akureyri. Um 60 – 70 manns sóttu fjöldahjálparstöð, sem Rauði krossinn opnaði í Glerárkirkju.
Fjöldi sjónarvotta varð að flugslysinu, sem átti sér stað við akstursíþróttasvæði þar sem keppni var í gangi. Fólki var boðið að fara með tveimur strætisvögnum í Glerárkirkju og þáðu það margir.
Strax eftir flugslysið var flugslysaáætlun virkjuð, sem varsíðast æfð á Akureyri í vor.
Hjálparsími Rauða krossins 1717 leiðbeinir um stuðning og er fólki bent á að hringja í hann. Símanúmerið er 1717.