Aðalfundur Rauða krossins á Skagaströnd
Aðalfundur Rauða krossins á Skagaströnd verður haldinn fimmtudaginn 27. febrúar 2020 kl. 20.00 í húsnæði deildarinnar.
Dagskrá fundarins er hefðbundinn samkvæmt 20.gr. laga Rauða krossins á Íslandi og er hún eftirfarandi:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla um starf deildarinnar 2019
3. Skoðaður ársreikningur 2019 lagður fram til afgreiðslu
4. Framkvæmda- og fjárhagsáætlun 2020 lögð fram
5. Innsendar tillögur.
6. Kosning deildarstjórnar og varamanna þeirra
7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga til eins árs.
8. Önnur mál
Kjörgengir í stjórn og atkvæðaréttur hafa allir félagar, 18 ára og eldri sem greiddu félagsgjöld fyrir 1. janúar 2020. Fundurinn er opin öllum félagsmönnum og sjálfboðaliðum með sjálfboðaliðasamning.