Börn og umhverfi í Hafnarfirði
Börn og umhverfi hjá Rauða krossinum í Hafnarfirði verður haldið helgina 27.-28. júní 2020. Námskeiðið er ætlað ungmennum fædd á árinu 2008 og eldri (12 ára og eldri).
Kennsla fer fram í húsnæði Rauða krossinum í Hafnarfirði á Strandgötu 24 og er kennt yfir eina helgi.
Laugardagurinn 27. júní kl: 10:30-15:30 - Efni: Rauði krossinn, þroski barna, samskipti. Leikir, leikföng, umönnun.
Sunnudagurinn 28. júní kl: 10:30-15:30 - Efni: Slysavarnir og skyndihjálp
Á námskeiðinu er farið í ýmsa þætti sem varða umgengni og framkomu við börn. Rætt er um árangursrík samskipti, aga, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng. Lögð er áhersla á umfjöllun um slysavarnir og algengar slysahættur í umhverfinu ásamt kennslu í skyndihjálp. Að auki fá þátttakendur innsýn í sögu og starf Rauða krossins.
Námskeiðsgjald er kr. 9.900,- og öll námskeiðsgögn eru innifalin. ATH! að taka með sér hollt og gott nesti fyrir pásu. Leiðbeinendur eru leikskólakennarar og hjúkrunarfræðingar. Þátttakendur fá viðurkenningu að námskeiði loknu.
SKRÁNING- skráið nafn og kennitölu barnsins áður en farið er á greiðslusíðu Valitors.
ATH! Þátttökugjald er ekki endurgreitt ef styttra en þrír dagar eru í námskeið og læknisvottorð liggur ekki fyrir. Eftir að námskeiðið er hafið er þátttökugjaldið ekki endurgreitt. Allar nánari upplýsingar í síma 570 4220 og á hordur@redcross.is