Inngangur að neyðarvörnum - fjarnám
Námskeiðið Inngangur að neyðarvörnum verður haldið þriðjudaginn 23. febrúar næstkomandi í gegnum fjarfundarforritið Zoom. Námskeiðið er opið öllum sjálfboðaliðum Rauða krossins. Námskeiðið hefst klukkan 19 og lýkur klukkan 22. Þátttakendur þurfa að hafa aðgang að vefmyndavél og míkrafón.
Ókeypis er á námskeiðið.
Helstu efnistök:
- Kynning á neyðarvörnum Rauða krossins.
- Opnun fjöldahjálparstöðvar
- Samantekt og umræður
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Jón Grétar Guðmundsson
Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Tryggva Hjört í síma 848-9336