Inngangur að neyðarvörnum á Breiðdalsvík
Námskeiðið "Inngangur að neyðarvörnum" verður haldið mánudaginn 23. september á Kaffi Hamar á Breiðdalsvík frá kl. 17 - 21.
Ingólfur Freysson kemur að norðan og fer yfir opnun fjöldahjálparstöðvar og annað gagnlegt.
Þegar hættuástand skapast vegna náttúruhamfara eða annarra stórslysa fer neyðarvarnarkerfi Rauða krossins í gang. Námskeiðið „Inngangur að neyðarvörnum“ snýst um hlutverk Rauða krossins í neyðarvörnum landsins. Þetta er skyldunámskeið fyrir þá sjálfboðaliða sem vilja vera á útkallslista Rauða krossins og taka þannig þátt í að efla neyðarvarnir á Íslandi.
Skráning fer fram hér.
Nánari upplýsingar veitir Þórunn Björg Halldórsdóttir - netfang: thorunnbjorg@redcross.is