Slys og veikindi barna Mosfellsbæ
Rauði krossinn í Mosfellsbæ heldur námskeiðið Slys og veikindi barna 7. febrúar 2019 kl. 17-21 að Þverholti 7, Mosfellsbæ.
Námskeiðið hentar foreldrum, forsjáraðilum og öðrum þeim er sinna börnum dagsdaglega.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á grunnatriði almennrar skyndihjálpar, svo sem skoðun og mat á ástandi og endurlífgun. Farið er í viðbrögð við algengum slysum og alvarlegum veikindum og hvernig best er að styðja við börnin í slíkum tilfellum.
Námskeiðið gagnast öllum þeim sem umgangast börn hvort sem er í starfi eða daglegu lífi.
Inntökuskilyrði: Þátttakendur séu 16 ára eða eldri.
Þátttökugjald er 6.000.- á mann en ef báðir foreldrar mæta þá er gjaldið 5.000.- á mann, vinsamlega hafið samband við Rauða Krossinn í Mosfellsbæ til að bóka fyrir par/hjón.
Nánari upplýsingar eru í 570-4000 og á moso@redcross.is
Skráning fer fram hér.
ATH! Þátttökugjald er ekki endurgreitt ef styttra en þrír dagar eru í námskeið og læknisvottorð liggur ekki fyrir.