Almennar fréttir

Framboð til stjórnar Rauða krossins á Íslandi

21. janúar 2022

Kjörnefnd Rauða krossins á Íslandi hefur nú tekið til starfa skv. 8. gr. laga RKÍ frá 23. maí 2020 og verklagsreglum kjörnefndar. Þetta tilkynnist hér með deildum félagsins, félögum og sjálfboðaliðum sem áhuga kunna að hafa.

Á aðalfundi Rauða krossins á Íslandi sem haldinn verður 21. maí 2022 ber að kjósa stjórnarfólk sem hér segir:

  • Formann til fjögurra ára
  • Varaformann til fjögurra ára
  • Fjóra stjórnarmenn til fjögurra ára
  • Tvo varamenn til tveggja ára

Hér með er lýst eftir framboðum þeirra sem vilja taka að sér ofantalin hlutverk. 

Tillögum eða upplýsingum um framboð skal koma á framfæri við kjörnefndarfólk, sjá að neðan eða skriflega til Landsskrifstofu á netfangið kristjana@redcross.is eða í pósti merkt:

Rauði krossinn á Íslandi – kjörnefnd
b.t. Kristjönu Fenger
Efstaleiti 9
103 Reykjavík

Frestur til að skila tillögum og framboðstilkynningum er til kl. 16:00 föstudaginn 25. febrúar 2022

Kjörnefndin er þannig skipuð:

 

Varamaður: