Margt spennandi á dagskrá Mórals
Dagskrá Mórals (13-16 ára ungmennastarf Mosfellsbæjardeildar) er nú komin á síðu ungmennastarfsins hérna. Ýmislegt spennandi verður á dagskránni þessa önnina, skyndihjálparkennsla, hópaverkefni, heimsóknir, þátttaka í Evrópuviku gegn kynþáttamisrétti og margt fleira.
Ungmennastarfið er öllum opið og kostar ekkert. Leiðbeinendur eru allir sjálfboðaliðar og hafa tekið þátt í ungmennastarfi deildarinnar í mörg ár. Allt ungmennastarf Rauða krossins fylgir Barnaverndarreglum félagsins sem má finna hérna.
Nánari upplýsingar um Móral og ungmennastarf Mosfellsbæjardeildar má fá í síma 564-6035 og netfangi moso@redcross.is

Nýir starfsmenn hjá Rauða krossinum í Kópavogi
Tveir nýir starfmenn hófu störf hjá Rauða krossinum í Kópavogi í byrjun árs. Guðrún Eyjólfsdóttir tók við starfi Hrafnhildar Helgadóttur sem verkefnastjóri verkefna. Guðrún hefur starfað sem þroskaþjálfi hjá Ási styrktarfélagi síðastliðin 22 ár. Hrafnhildur Helgadóttir hóf störf hjá UNICEF á Íslandi um áramótin.
Bára Björk Elvarsdóttir tók við starfi verslunarstjóra Fataverslana Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu af Helgu Pálsdóttur. Bára er menntaður viðskiptafræðingur og hefur mikla reynslu af verslunarstörfum og -rekstri.
Sund er afbragðs heilsurækt
Á síðasta fundi heimsóknavina var gestur fundarinns Elín Gísladóttir, forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar. Elín miðlaði ýmsum fróðleik um starfsem i sundlaugarinnar allt frá upphafi en þó fyrst og fremst um starfsemina eins og hún er í dag. Sund er eins og flestir vita afbragðs heilsurækt hvort sem menn nýta sér það að synda, ganga eða gera æfingar í vatninu. Fólk þarf hreint ekki að vera synnt til að nýta sér þjónustu sundlauga því margir mæta einungis fyrir heitu pottana, gufuböðin og svo auðvitað félagsskapinn. Fjölbreitt starf fer fram í sundlauginni; óléttusund (-leikfimi ), ungbarnasund, skólasund, sundæfingar og almenningssund fyrir fólk á öllum aldri. „Þjónusta frá getnaði til grafar „ eins og einhver kallaði það.
Góð þátttaka á fjöldhjálparnámskeiði
Námskeið í fjöldahjálp var haldið á Akureyri sl. laugardag með þátttöku rúmlega 30 sjálfboðaliða frá Rauða krossinum á Akureyri, Húsavík Dalvík og Ólafsfirði. Námskeiðinu var tvískipt á þann hátt að fyrir hádegi var almenn kynning á Neyðarvörnum Rauða krossins, hlutverki hans við skráningu og upplýsingargjöf. Einnig var æfð opnun á fjöldahjálparstöð.
Eftir hádegi var farið nánar yfir ábyrgð og skyldur fjöldahjálparstjóra í neyðarvörnum, farið fyrir skipulag almannavarna á Íslandi og fjallað um samskipti við fjölmiðla. Þá tók við hópavinna þar sem skipulögð voru viðbrögð við vá, en námskeiðinu lauk síðan með almennum umræðum. Leiðbeinendur á námskeiðinu voru Jón Brynjar Birgisson og Guðný Björnsdóttir.

Námskeið í fjöldahjálp
Laugardaginn 12. janúar verður haldið námskeið fyrir fjöldahjálparliða og fjöldahjálpastjóra.
Námskeiðið verður nú með nýju sniði og verður tvískipt. Frá kl. 9 – 13 mun fræðslan snúast fyrst og fremst um starf í fjöldahjálparstöð og um hlutverk þeirra sem vilja vera til aðstoðar. Í seinni hlutanum frá kl. 13 – 17 verður farið enn frekar í hlutverk Rauða krossins og hvernig við störfum í almannavarnarkefinu.
Námskeiðið ætlað þeim sem vilja vera til taks og aðstoða Rauða krossinn við hlutverk sitt í neyðarvörnum.
Námskeiðið verður haldið í húsnæði deildarinnar 12. janúar kl. 9 – 13 og 13 – 17 og er hægt að skrá sig á heimasíðu Rauða krossins og á akureyri@redcross.is