-
Á myndinni má sjá Evu Rut, Elísabet ásamt Magnúsi og Elísabet frá Alþjóðlegu Frímúrarareglu karla og kvenna (LE DROIT HUMAIN) á Íslandi með Atla Viðari sviðsstjóra Rauða krossins
Alþjóðlega Frímúrararegla karla og kvenna (LE DROIT HUMAIN) styrkir börnin í Jemen
Í vikunni barst neyðarsöfnun Rauða krossins á Íslandi vegna hungursneyðar í Jemen veglegur styrkur frá Alþjóðlegu Frímúrarareglu karla og kvenna (LE DROIT HUMAIN). Upphæðin nam 500 þúsund sem dugar til að gefa 517 börnum í Jemen mat í heilan mánuð.
Talið er að um tvær milljónir Jemena séu á vergangi og þurfa bráðnauðsynlega á aðstoð halda. Margir leita skjóls hjá kunningjum eða ættingjum en aðrir hafa reist sér skýli sem einfalt þak yfir höfuðið. Ljóst er að gríðarlegur skortur er á mat, hreinu vatni og nauðsynjavörum. Um 2,9 milljónir Jemena hafa nú þegar yfirgefið heimili sín og eru á flótta vegna átakanna í landinu. Milljónir íbúa Jemen fá eina máltíð á dag og vita ekki hvaðan eða hvenær næsta máltíð kemur.
Hægt er að styrkja hjálparstarf Rauða kross hreyfingarinnar í Jemen um 2900 kr. með því að senda SMS-ið HJALP í númerið 1900. Einnig má leggja inn á reikning 0342 - 26 -12, kt. 530269-2649. Sú upphæð dugar til þess að þrjú börn í Jemen fái mat í einn mánuð.
Rauði krossinn á Íslandi þakkar kærlega fyrir þetta framlag.
- Eldra
- Nýrra