Laust starf lögfræðings
Rauði krossinn á Íslandi auglýsir eftir lögfræðingi í réttaraðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Helstu verkefni:
- Réttaraðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd á lægra og æðra stjórnsýslustigi
- Samskipti við samstarfsaðila innan lands og utan
- Þátttaka í málsvarastarfi í þágu umsækjenda um alþjóðlega vernd
- Þátttaka og stuðningur við annað starf Rauða krossins í málaflokknum
Menntun og hæfniskröfur:
- Meistara- eða embættispróf í lögfræði
- Þekking og/eða reynsla af málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd
- Reynsla af starfi með Rauða krossinum er kostur
- Mjög góð rit- og talfærni á íslensku og ensku
- Önnur tungumál eru kostur
- Þekking og/eða reynsla af verkefnastjórnun er kostur
- Mjög góð færni í mannlegum samskiptum og menningarlæsi
Umsóknarfrestur er til og með 9. desember n.k. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Atli Viðar Thorstensen, atli@redcross.is og umsóknir óskast sendar á sama netfang.