Matráður
Rauði krossinn á Íslandi auglýsir eftir matráði í 50% starf til að sjá um mötuneyti félagsins í Efstaleiti 9 í Reykjavík. Mötuneyti Rauða krossins er framreiðslueldhús þar sem ýmist er boðið upp á aðsendan mat í hitabökkum eða léttan hádegisverð fyrir allt að 50 manns. Þá sér matráður um fundakaffi og umsjón með kaffistofu fyrir starfsmenn og gesti Rauða krossins. Vinnutími er frá kl. 10-14 alla virka daga.
Helstu verkefni:
· Framreiðsla á aðsendum mat
· Eldun og framreiðsla á súpum og öðrum léttum hádegismat
· Umsjón með kaffistofu
· Frágangur, þrif og sótthreinsun í mötuneyti og kaffistofu
· Innkaup á matvörum
· Gæðaeftirlit
Hæfniskröfur:
· Reynsla af sambærilegum störfum eða menntun á sviði matvælagreina.
Umsóknarfrestur er til og með 16. desember 2018
Umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi sendist á starf@redcross.is. Öllum umsóknum verður svarað eftir að umsóknarfrestur er liðinn.
Nánari upplýsingar veitir Jón B Birgisson sviðsstjóri innanlandssviðs í jonb@redcross.is og í síma 570-4000.
In English:
Canteen staff
50% position
The Icelandic Red Cross seeks a canteen staff member for its headquarters in Efstaleiti 9 in Reykjavik. Our canteen serves lunch for up to 50 people daily. Hot meals come pre-made from catering services and light lunches are prepared on-site. The canteen staff member also handles the office cafeteria (coffee, tea and snacks). Working hours are weekdays from 10-14.
Main tasks:
· Preparation of pre-made lunch
· Cooking and preparation of soup and other light lunch
· Handling of cafeteria
· Cleaning and disinfection of kitchen and cafeteria
· Purchase of food products
· Quality assurance
Qualifications:
· Qualified kitchen or canteen worker, either by training or experience
Application due date: 16 December 2018
Application along with CV and introduction letter shall be sent to starf@redcross.is. All applications will be answered after due date.
Further information: Jón B Birgisson director of domestic operations jonb@redcross.is and through telephone 570-4000.