Alþjóðastarf

70 milljónir til mannúðaraðgerða í Úkraínu og nágrannaríkjum

10. mars 2022

Rauði krossinn á Íslandi tilkynnti Alþjóða Rauða krossinum í gær um 70 milljónir króna til mannúðaraðstoðar í Úkraínu vegna átakanna þar í landi og til að aðstoða flóttafólk í nágrannaríkjum þess.

Rauði krossinn á Íslandi tilkynnti Alþjóða Rauða krossinum í gær um 70 milljónir króna til mannúðaraðstoðar í Úkraínu vegna átakanna þar í landi og til að aðstoða flóttafólk í nágrannaríkjum þess. Framlagið er afrakstur neyðarsöfnunar Rauða krossins þar sem nú hafa tæplega 40 milljónir króna safnast auk 30 milljóna króna framlags frá utanríkisráðuneytinu. Neyðarsöfnun Rauða krossins heldur áfram og áformar félagið að senda frekara fjármagn með stuðningi almennings, Mannvina Rauða krossins, fyrirtækja og stjórnvalda því ljóst er að neyðin í Úkraínu og nágrannaríkjum þess þar sem flóttafólk leitar skjóls vex dag frá degi.

Helmingur fjármagnsins fer til mannúðaraðgerða innan Úkraínu þar sem lögð er áhersla á neyðaraðstoð eins og dreifingu matvæla, tryggt aðgengi að vatni og öðrum nauðsynjum. Jafnframt er lögð áhersla á að tryggja virkni nauðsynlegra innviða landsins, t.d. með því að styðja við spítala og heilsugæslur með læknisbúnaði og lyfjum og gera við og halda vatnsveitum gangandi.

Staða Rauða krossins sem hlutlaus og óhlutdræg hreyfing á átakasvæðum tryggir starfsfólki og sjálfboðaliðum aðgengi að svæðum þar sem aðrir hafa annað hvort mjög takmarkað eða jafnvel ekkert aðgengi að almennum borgurum. Þá leggur Alþjóðaráð Rauða krossins þunga áherslu á að stríðandi fylkingar virði skuldbindingar sínar samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum sem eiga að vernda almenna borgara, borgaraleg mannvirki og innviði frá árásum. Þá er mikilvægt að almennir borgarar geti flúið átakasvæði á öruggan hátt með aðstoð Alþjóðaráðs Rauða krossins.

„Við erum mjög þakklát fyrir stuðning almennings, fyrirtækja og íslenskra stjórnvalda“ segir Robert Mardini framkvæmdastjóri Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC). „Stuðningur við og samhugur almennings á Íslandi með þeim sem þjást vegna ástandsins í Úkraínu er afar vel metinn. Því meiri stuðning sem við fáum þeim mun meira getur Rauði krossinn gert fyrir fólk sem þjáist vegna átakanna og á þann hátt komið til móts við þarfir almennra borgara.“

Hinn helmingur söfnunarfjársins verður notaður til að taka á móti flóttafólki í nágrannaríkjum Úkraínu þar sem hátt í tvær milljónir hafa leitað skjóls, aðallega konur og börn. Sérstök áhersla verður lögð á að styðja mannúðarstarf Rauða krossins í Moldóvu. „Við erum ótrúlega þakklát fyrir þann mikla stuðning sem almenningur, Mannvinir Rauða krossins, fyrirtæki og stjórnvöld hafa sýnt lífsbjargandi mannúðarstarfi Rauða krossins með fjárframlögum“ segir Atli Viðar Thorstensen sviðsstjóri alþjóðasviðs Rauða krossins. „Þarfirnar eru svo miklar að hver króna skiptir máli. Við á Íslandi erum sannarlega að leggja okkar lóð á vogarskálarnar og það er tekið eftir okkar stuðningi og hlýhug.“ Auk fjármagns til mannúðaraðgerða eru sex sendifulltrúar Rauða krossins á leið til Úkraínu og nágrannaríkja með stuðningi utanríkisráðuneytisins þar sem þau sinna hjálparstarfi næstu vikur og mánuði.

Neyðarsöfnun Rauða krossins vegna Úkraínu heldur áfram og er enn mikil þörf á stuðningi almennings, fyrirtækja og stjórnvalda við lífsbjargandi mannúðarstarf Rauða krossins. Mikilvægast er núna að safna fjármunum  til að senda áfram í brýna mannúðaraðstoð Rauða kross hreyfingarinnar fyrir þolendur átakanna í Úkraínu.  Hægt er að leggja söfnuninni lið hér eða með því að senda smsið HJALP í 1900.

Við hvetjum einnig fólk til að gerast Mannvinir, þ.e. mánaðarlegir styrktaraðilar Rauða krossins, til þess að styrkja við starf Rauða kross til lengri tíma.

 

Gerast Mannvinur.